Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Auglýsing

Prófíll

  • Nafn: Tóta, Rannveig, Erna, Gígja, Jovana og Ólöf.
  • Stađur: Grindavík, Kópavogur, Reyđarfjörđur og Reykjavík city.
  • Um mig: Flottar skvísur sem ađ hafa allar áhuga á öllu sem ađ er ađ gerast í kringum okkur og erum frekar miklar íţróttafríkur!!!

Klukkan

Jćja hvađ er ađ frétta?

11. júní 2009 klukkan 11:18
Hæ sætu skvissur!
Það er nú alveg spurning hvor það kíkji einhverjar ennþá hérna inn!
Mig langaði nú bara að vita hvað er að frétta af ykkur og hvort það sé einhver möguleiki á að hittast einhverntíman í sumar?
Bestu kveðjur
Erna Rún
Tóta, Rannveig, Erna, Gígja, Jovana og Ólöf.
1 athugasemd

Hittingur!

12. mars 2009 klukkan 16:59

Dadaraddadaaaa!!!!
Jæja skvísur nær og fjær!!-þá aðallega ég fjær sko!

Rannslan er að koma í menninguna þann 24 og 25 mars og af því tilefni ætlar hún Gígja okkar að hafa hitting þann 25.mars kl 14:00!!!

Ég mæti galvösk og kát, en hvað með ykkur hinar??

Endilega kommentið krússlurnar mínar, og ég hlakka alveg gríðarlega mikið til að hitta ykkur allar og spjalla og smjattaKiss

Kveðja Austfjarðarbúinn!

Tóta, Rannveig, Erna, Gígja, Jovana og Ólöf.
9 athugasemdir

Mikilvćgt ađ svara könnun

02. mars 2009 klukkan 21:54

Sælar stúlkur

Jæja það er mjög langt síðan við hittumst síðast og það er hreinskilni sagt sorglegt. Sko þannig er mál með vexti að það er búið að vera mjög mikið að gera hjá mér og er það enn. Ég er að velta fyirr mér hvort það sé í lagi að við hittumst og gerum eitthvað?? Ég setti fram smá könnun þar sem þið getið svarað hvað þið viljið gera.

Endilega svarið henni og kommentið hér hvenær þið hafið tíma það er að segja dagsettningu.

Vonandi skiliði þetta hjá mér;)

Heyrumst og sjáumst
JLS

Tóta, Rannveig, Erna, Gígja, Jovana og Ólöf.
28 athugasemdir

2009

05. janúar 2009 klukkan 16:40
 

Sælar

Gleðilegt nýtt ár og takk fyrir það gamlaJ Mig langar að koma með eina færslu fyrst það er nú komið nýtt ár. Á síðasta ári vorum við ekki alveg nógu duglegar að hittast eða mér fannst það ekki og ég veit að þið eruð sammála mérJ Samt sem áður þá bættum við það svolítið upp með því að fara á þetta glæsilega jólahlaðborð sem var by the way magnað. Ég segi að við reynum nú að blása lífi í klubbinn okkar. Hvað er skemmtilegra en að hittast snæða saman, spjalla eða gera eitthvað skemmtilegtJ

 

Ég legg til að sú sem vil halda fyrsta hitting (sem er þá janúarhittingur) kommenti hérna að neðan og komi svona með tillögu um dagsettningu. Lýst ykkur ekki bara vel á það. Svo væri sniðugt að þegar við hittumst að við skráum hverja og eina á einn mánuð til að vera með hitting


Bestu kveðjur
JLS

Tóta, Rannveig, Erna, Gígja, Jovana og Ólöf.
11 athugasemdir

Gleđileg jól

29. desember 2008 klukkan 12:29
Sælar elsku dúllurnar mínar!
Ég er búin að vera að bíða eftir slúðri frá ykkur um dansiballið! Var ekki gaman hjá ykkur! Ohhh langaði svo að vera með ykkur, ekkert smá langt síðan við höfum farið á ball saman...
Klúbburinn verður síðan endurvakinn núna í janúar og ég skal sjá til þess
En endilega komið með einhverjar sögur, ekki mikið að gerast hérna hjá mér á Akureyri!
Bestu kveðjur Erna Rún
Tóta, Rannveig, Erna, Gígja, Jovana og Ólöf.
1 athugasemd

Og ţá er ţađ ákveđiđ

12. nóvember 2008 klukkan 15:19
Jæja ég er búin að panta fyrir okkur borð í JÓLABRUNCH í Turninum. Það vildi svo skemmtilega til að akkúrat degi áður en við mætum þá byrjuðu þeir að bjóða upp á jólabrunch. Á meðal þess sem þar er á boðstólnum er purusteik og humarsúpa, víst eitthvað geggjað gott....
Þannig að þetta lítur þá svona út:
Jólabrunch í Turninum
23.nóvember
kl:11:30
Verð: 3150 kr á mann
Ég pantaði fyrir níu manns þannig að Rannveig þarf ekkert að ákveða sig neitt strax hvort hún komist eða ekki. Maðurinn sem ég talaði við sagði það ekki skipta máli hvort einn forfallist.
En þetta lofar rosagóðu og ég er bara megaspennt að sjá ykkur allar saman ásamt köllunum :)
Bestu kveðjur
Erna Rún sem komin er í hátíðaskap :)
Tóta, Rannveig, Erna, Gígja, Jovana og Ólöf.
4 athugasemdir

Komiđ ađ ţví ađ kjósa.....

10. nóvember 2008 klukkan 13:16

Jæja stúlkur....

Ég hef ákveðið að setja inn tvær dagsettningar og svo veljið þið bara hvor henntar ykkur betur.

Sunnudagurinn 23 nóvember 2008 kl 11:30 brunch Vox???

Sunnudagurinn 30 nóvember 2008 kl 11:30 brunch Vox???

Makar með eða án???Wink



Kv Djóí tribbianí

Tóta, Rannveig, Erna, Gígja, Jovana og Ólöf.
22 athugasemdir

Jólahlađborđ...

30. október 2008 klukkan 14:32
Hæhæ
Jæja við sem hittumst síðustu helgi í afmælinu hjá Friðriki vorum allar sammála um að fara á jólahlaðborð og taka karlana með. Við vorum búnar að setja dagsetninguna 20.des. En það hentar eiginlega ekki, allavega ekki fyrir mig þar sem Berglind Anna systir er að útskrifast og líklegt er að einhverjar okkar fari kannski í útskriftarveislur. Því var ég að spá hvort 19.des sé í lagi? Svo auðvitað fyrr bara í desember en þá kemst Rannveig auðvitað ekki. Þetta er smá vandamál, en hvað segið þið skvísur, ef við ætlum að fara þá þurfum við helst að fara að panta. Það er bara dagsetningin sem þarf að ákveða.
Svo er auðvitað alltaf hægt að gera eitthvað annað. Gaman að fara í brunch á Nordica, kostar ekki mikið og þar er mjög góður matur.....Hvað segið þið?
Kveðja Erna Rún
Tóta, Rannveig, Erna, Gígja, Jovana og Ólöf.
11 athugasemdir

Jćja......

22. október 2008 klukkan 14:04
Erum við lélegastar í heimi að blogga eða????
Nú eru jólahlaðborðin farin að auglýsa á fullu. Ástæðan fyrir því að ég segji það er að það barst í tal í síðasta hittingi að gaman væri að fara saman á jólahlaðborð. Þó það sé alveg hellings tími til jóla þá þarf að panta svona sem fyrst. Hvað segið þið? Eru þið eitthvað spenntar fyrir þessu. Þetta er að kosta frá 6000-9000 kr! Einnig getum við líka gert eins og í fyrra, farið saman út að borða og endað á Frostrósartónleikunum...Það var líka æðislegt en allavega, þið kannski kíkið á þetta áður en við hittumst í afmælinu hjá Frikkanum....
Þangað til þá.....
Erna Rún
Tóta, Rannveig, Erna, Gígja, Jovana og Ólöf.
7 athugasemdir

Jćja dömur!

16. september 2008 klukkan 13:47

Já góðan daginn skvísulísur.
Er búið að ákveða stað og stund fyrir hittinginn??
Endilega látið vita.
Knús og kossar
RannveigKoss

Tóta, Rannveig, Erna, Gígja, Jovana og Ólöf.
6 athugasemdir